Skilmálar Tan.is
Með því að leggja inn pöntun hjá Tan.is samþykkir kaupandi eftirfarandi skilmála. Ef eitthvað er
óljóst, sendið fyrirspurn á mekkano@mekkano.is
Tan.is er rekið af Mekkano Ehf,kt 450419-2220

Greiðsla:
Kaupandi getur innt greiðslu af hendi með kreditkorti eða debetkorti
Kortafærslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar.

Afhending vöru:
Allar upplýsingar um afhendingu pantana eru að finna í greiðsluferlinu og geta sendingar
valmöguleikarnir breyst án fyrirvara.

Tan.is tekur ekki ábyrgð á að viðskiptavinir gefi upp rétt póstfang eða símanúmer eða séu með rétt
merkta póstkassa eða póstlúgur.


Vöruskil:
Kaupandi hefur 14 daga frá móttöku vöru til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki
notað vöruna, henni sé skilað í óuppteknum og upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má
ekki rjúfa innsiglið. Kvittun fyrir vörukaupum þarf að fylgja. Að ofangreindum skilyrðum uppfylltum
og eftir að varan er móttekin, er gengið frá endurgreiðslu. Sendingarkostnaður er ekki
endurgreiddur.

Vöruskil fara fram í verslun okkar á Bíldshöfða 18. Ef varan var pöntuð með sendingu þá er hægt að
skila með því að senda vöruna til baka á:

Mekkano Ehf
Bíldshöfða 18.
112 Reykjavík
Þegar varan hefur verið móttekin er gengið frá endurgreiðslu.


Vöruverð:
Öll vöruverð eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilum við okkur rétt til að hætta við viðskipti
hafi rangt verð verið gefið upp.
Vinsamlega athugið að vöruverð getur breyst án fyrirvara.

Innihaldslýsingar, myndir og aðrar upplýsingar:
Allar upplýsingar á síðunni eru birtar með fyrirvara um mögulegar prentvillur og myndbrengl. Við
hvetjum viðskiptavini til að lesa um innihaldsefni á umbúðum áður en þær eru notaðar.


Trúnaður:
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum
við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Tan.is áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum hvenær sem er. www.tan.is.